|
|
|
|
|
|
![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() |
Stjörnuhóp skipa Fanney, Gunnar, Inga Valdís, Josue og Þorri Hópstjóri er Hrafnhildur (hrafnhildur@hlidabol.is) Hópastarfið er á mánu- og þriðjudögum frá 9.10-10.20
|
|
2. maí Vorum í bláa herberginu. Vorum að leika með bolta, mest í fótbolta. Í lokin fengum börnin það skemmtilega verkefni að búa um dýnurnar fyrir börnin sem sofa á daginn. Þau stóðu sig vel og fannst þetta spennandi að fá að hjálpa til við þetta. Lærðum einnig 2 nýjar SMT reglur sem gilda í Vettvangsferðum. 13. maí Vorum aftur í bláa herberginu. Fórum í einingakubbana og bjuggum til allskonar hús og hluti. Í lokin fórum við í boltaleiki. Rifjuðum í lokin upp reglurnar sem við lærðum í gær.
4. apríl Vorum í bláa herberginu í dag. Byrjuðum á því að undirbúa, ásamt hinum hópunum (Gullmolum og Demöntum) atriðið sem börnin verða með á páskahátíðinni. Allir fengu sín hlutverk. Því næst var komið að því að læra SMT reglur þessarar viku en þær gilda í söngstund. Í lokin tókum við í Stjörnuhóp einingakubbana fram og þau byggðu allskyns sniðuga hluti úr kubbunum. Allir voru duglegir að setja kubbana á sinn stað í lokin.
29. mars Vorum í rauða föndurherberginu. Máluðum myndir með málningu og vatnslitum.
28. mars Allir mættir í dag. Vorum niðri í rauða föndurherberginu. Byrjuðum á því að teikna sjálfsmynd eins og við gerum reglulega. Næst máluðum við tvær myndir með því að dýfa svampi í málningu og stimpla á hvít og appelsínugul blöð.
22. mars Vorum aftur á hvíta svæðinu í dag. Allir mættir. Verkefni dagsins var sögugerð. Til að auðvelda hana vorum við með myndir úr "Sögugrunni" af persónum, byggingum og leikföngum/hlutum. Börnin völdu til skiptis myndir og festu á vegginn og sögðu frá í leiðinni og á endanum vorum við komin með hina ágætustu sögu sem þið fáið að lesa á vorsýningunni okkar í maí. 21. mars Vorum á hvíta svæðinu í dag. Það er aðalendurvinnslusvæðið. Brettum því upp ermar og hófumst handa við að flokka allt sem fara átti í endurvinnslu. Flokkuðum meðal annars pappa, fernur, plast og málm. Höfum gert þetta nokkrum sinnum áður og krakkarnir því orðnir öruggir og verkvitið nokkuð gott á þessu sviði :) Í lokin fórum við í hring og skiptumst á að segja frá uppáhaldsmatnum okkar og uppáhaldslitnum. 14.mars Allir mættir í dag :) Vorum í græna herberginu. Lærðum nýjar reglur sem gilda í samverustund. Fórum svo að klippa og líma og búa til dúka. Perluðum einnig með litlu perlurnar. 7. mars Vorum í bláa herberginu í dag. Einungis þrjú börn mætt í dag. Lékum okkur með einingakubbana. 21. febrúar Í dag vorum við í hvíta herberginu. Fengum það verkefni að flokka pappa, fernur og plast sem fara átti í endurvinnslu. Gekk vel enda flokkuðum við líka í síðustu viku. 15. febrúar Í dag voru þrjú börn mætt í hópastarfi í dag. Áfram héldum við með það sem á að fara í endurvinnsluna. Börnin hjálpuðu til við að flokka pappa, plast og málm og setja á sinn stað. Þau voru rosalega dugleg og áhugasöm. Geta eflaust hjálpað til við slíkt hið sama heima við. 8. febrúar Í gær voru börnin uppi á lofti í dúkkuleik með Nicoletu. Í lok tímans kom Hrafnhildur og þá fóru allir niður að hjálpa til við að taka í sundur stóra pappakassa sem eiga að fara í endurvinnslu. 7. febrúar Fórum í göngutúr í hópastarfi í dag. Í gær var dagur leikskólans en þá var sunnudagur og frí og þess vegna var ákveðið að halda upp á daginn í dag. Við fórum því í göngutúr hér í nágrenninu og gáfum þeim sem við hittum á leiðinni myndir sem börnin á Hlíðabóli höfðu teiknað. Það tóku því allir vel og þökkuðu fyrir. 24.janúar Allir mættir í dag, svolítið langt síðan að það var síðast. Við vorum á hvíta leiksvæðinu í dag, það er á risastóru mottunni á holinu. Lékum okkur með trékubbana. Mottan var skipið okkar og gólfið í kring var sjórinn með hákörlum og krókódílum. Allir léku vel og nutu leiksins og notuðu ímyndunaraflið vel í leiðinni.
17. janúar Vorum í græna herberginu í dag. Nú var komið að því að teikna aftur sjálfsmynd á blað og gekk það vel og gaman að sjá hve myndirnar verða alltaf nákvæmari sem mánuðirnir líða. Síðari hluta tímans notuðum við til að spila. Við fórum í spil sem þjálfar bæði það að telja og litina. 11. janúar Fórum aftur yfir nýju SMT reglurnar sem gilda í vali. Vorum aftur í dag í bláa herberginu. Fórum í hreyfi- og boltaleiki. Æfðum til dæmis að skjóta körfubolta ofan í körfu sem hékk á rimlunum. Krakkarnir sýndu góðar framfarir eftir því sem þau skutu oftar og voru stolt og glöð þegar þau skoruðu. Seinni hluta tímans hlustuðum við á tónlist og gerðum ýmsar íþróttaæfingar og dönsuðum, það er alltaf jafn hollt og gaman. 10. janúar Í dag var fyrsti tíminn í hópastarfi á nýju ári. Við byrjuðum á því að læra SMT reglurnar sem gilda í vali. Því næst fórum við yfir hverjir væru mættir og sögðum í kór slagorðið okkar: "Við gerum okkar besta og það er alveg nóg". Verkefni dagsins var að byggja úr einingakubbunum. Það gekk vel og tiltektin líka :)
7. desember Í hópastarfi í dag vorum við niðri í rauða föndurherbergi. Við lögðum lokahönd á jólagjöfina fyrir foreldrana, segjum ekki meira :) 23. nóvember Vorum aftur í bláa herberginu. Fámennt í dag þar sem tvö börn voru ekki mætt. Lékum okkur með bolta, bjuggum til stóran hring með fótunum og rúlluðum 1-3 boltum á milli okkar. Því næst hlustuðum við á tónlist og dönsuðum með klúta og hljóðfæri og blöðrur, mjög gaman. Rifjuðum einnig upp hópastarfsreglurnar sem við lærðum í síðustu viku.
|
|
|
22.nóvember Vorum í bláa herberginu í dag. Lékum okkur á afmörkuðu svæði með einingakubbana og gekk það mjög vel. Nicoleta var með hópinn í dag.
|
|
|
16. nóvember Rifjuðum upp SMT reglurnar sem við lærðum í gær. Næst teiknuðum við myndir með taulitum. Hópastarf var stutt í dag því stelpur frá Glerárskóla komu í heimsókn í leikskólann og lásu fyrir okkur nokkrar bækur í tilefni dagsins - dagur íslenskrar tungu í dag.
|
|
|
15.nóvember Í dag lékum við okkur með trölladeig. Við lærðum líka nýjar reglur í SMT sem gilda í hópastarfi.
|
|
|
9.nóvember Í dag teiknuðu börnin aftur sjálfsmynd á A5 blað eins og þau gerðu í september. Þetta ætlum við að gera annanhvern mánuð í vetur og safna saman í litla bók. Það var mjög ánægjulegt að sjá framfarirnar hjá þeim, allir stóðu sig mjög vel að teikna. Því næst ræddum við aðeins um veturinn og snjóinn og börnin klipptu í sameiningu út stóran snjókarl sem þau lituðu á eftir.
|
|
|
8. nóvember Það var mikið stuð í hópastarfi í dag. Vatnið var þema tímans og allir sem vildu fengu að sulla og leika með dót í stóra vaskinum. Í lokin þegar allir voru búnir að þurrka sér og klæða sig aftur skoðuðum við nokkrar bækur.
|
|
|
2. nóvember Vorum aftur í bláa herberginu í dag. Við hlustuðum á tónlist og dönsuðum. Allir fengu eina blöðru sem hægt var að leika með meðan tónlistin hljómaði. Við fengum líka að róla. Í lokin lékum við okkur með einingakubbana.
|
|
|
1. nóvember Í dag vorum við í hreyfingu í bláa herberginu. Við fórum í skemmtilega þrautabraut sem innihélt meðal annars göng og rennibraut. Við fórum í leikinn "hver er undir teppinu" og í rúmenskan leik sem Nicoleta kenndi okkur. Þær breytingar hafa orðið að Tijan er hættur í stjörnuhóp þar sem hann var að hætta á Hlíðabóli og Gunnar er kominn í staðinn í Stjörnuhóp en hann var áður í Demantahópnum.
|
|
|
26. október Í dag vorum við niðri í rauða föndurherbergi. Fórum aftur yfir nýju SMT reglurnar sem börnin lærðu í gær. Því næst töluðum við um mismunandi störf sem fullorðnir vinna. Við skoðuðum stóra bók sem sýndi allskyns störf sem unnin eru. Krakkarnir æfðu sig í að segja frá við hvað foreldrar þeirra störfuðu. Í lokin máluðu allir eina mynd með pensli.
|
|
|
25. október Í dag vorum við niðri í rauða herbergi. Byrjuðum á því að læra nýjar reglur í SMT sem gilda á baðherberginu, það gekk vel og allir fengu broskarl. Því næst settumst við niður með pappír og klessuliti og allir teiknuðu mynd af fjölskyldunni sinni. Það var klappliðsstemning og börnin klöppuðu hressilega í hvert sinn sem einhver var búin að teikna og sýndi afraksturinn. Samheldnin og samstaðan í hópnum er orðin mjög góð og gaman að sjá það.
|
|
|
19. október Vorum í græna herberginu í dag. Byrjuðum á því að klippa út hringi og ferninga sem við höfðum litað fyrir nokkrum dögum. Flestir þurftu smá hjálp frá Hrafnhildi við að klippa og því klippti bara einn krakki í einu og hinir mynduðu klapplið sem klappaði ákaft þegar hver og einn var búin að klippa sína mynd. Því næst fórum við að æfa ræðuhöld. Hrafnhildur var búin að búa til heimatilbúið ræðupúlt og stilla upp stólum fyrir framan. Börnin settust svo á stólana og skiptust á að fara eitt í einu upp í púlt og tala aðeins um sig og sína fjölskyldu. Þau vildu öll prófa og gátu varla beðið eftir að röðin kæmi að þeim. Þau stóðu sig vel og hlökkum við til að prófa þetta aftur seinna.
|
|
|
18. október Vorum í græna í dag. Byrjuðum á því að fræðast aðeins um fjölskyldur barnanna í Stjörnuhóp. Hrafnhildur teiknaði upp myndir af fjölskyldum barnanna meðan þau voru að telja upp alla í fjölskyldunni svo léttara væri að muna hvað þau voru búin að segja. Þeir sem áttu gæludýr höfðu þau að sjálfsögðu með. Seinna ætla börnin svo að teikna eða mála myndir af öllum í fjölskyldunni sinni. Því næst fórum við út að tína rusl. Hvert barn fékk fötu til að tína rusl í. Við gengum hér í næsta nágrenni við leikskólann og fundum allskonar rusl. Þau voru rosalega dugleg og snögg að finna og tína ruslið. Voru mjög kappsöm og áhugasöm. Vegfarendur sem sáu góðverk þeirra brostu og dáðust að þeim, þeim þótti það nú ekki verra :)
|
|
|
5. október Vorum niðri í rauða föndurherberginu í dag. Okkur finnst svo gaman að mála þannig að við máluðum á pappahólk og eina mynd sem við skreyttum eftir að hafa málað hana. Í lok hópastarfsins fórum við upp í matsal og æfðum aftur matarreglurnar fjórar sem við lærðum í gær
|
Hlíðaból - Leikskóli Hvítasunnukirkjunnar á
Akureyri
Skarðshlíð 20 603 Akureyri - sími: 462-7411 -
tölvupóstfang: hlidabol hja hlidabol.is