










|
|
|
Sumarlögin |
Vertu til er vorið kallar á þig
vertu til að leggja hönd á plóg.
Komdu út því að sólskinið vill sjá þig,
:,:sveifla haka' og rækta nýjan skóg:,: |
Sá ég spóa suðrí flóa
syngur lóa útí móa
bí, bí, bí, bí.
Vorið er komið víst á ný. |
En það sólskin um mýra og
móa
merki vorsins um haga og tún, gróandi tún.
"Dýrðin" syngur í loftinu lóa
lyftast tekur á Íslandi brún, lyftist vor brún.
Nú er glatt og gaman syngjum fjörugt ha, ha, hæ
svo að hljóm' úr bæ
út um víðan sæ.
Tröllum hæ nú taka mun úr fjöllum allan snæ
trallalalæ, trallalalæ, trallalalæ. |
Vorvinda glaðir glettnir og
hraðir
geysast um löndin létt eins og börn.
Lækirnir skoppa hjala og hoppa
hvíld er þeim nóg í sæ eða tjörn.
:,:Hjarta mitt litla hlustaðu á
hóar nú smali brúninni frá.
Fossbúinn kveður kætir og gleður
frjálst er í fjallasal.:,: |
|
Hver
hefur skapað blómin björt,
blómin björt, blómin björt?
Hver hefur skapað blómin björt?
Guð á himninum.
Hver
hefur skapað fuglana.....
Hver
hefur skapað stjörnurnar.....
Hver
hefur skapað þig og mig.....
Hver
hefur skapað blómin björt,
fuglana, stjörnurnar?
Hver hefur skapað þig og mig?
Guð á himninum. |
Öxar við ána árdags í ljóma
upp rísi þjóðlið og skipist í sveit.
Skjótum upp fána. Skært lúðrar hljóma.
Skundum á Þingvöll og treystum vor heit.
Fram, fram, aldrei að víkja.
Fram, fram, bæði menn og fljóð.
Tengjumst tryggðarböndum, tökum saman höndum,
stríðum, vinnum, vorri þjóð. |
|
|
|
|
|
Sönglögin í október |
Þegar dagur er komin að kveldi,
sest ég við gluggann minn.
Horfi á himinn, sem Guð hefur skapað,
það gleður augun mín.
:,: Því hver einasta stjarna hún minnir mig á,
hve heitt Guð elskar mig.:,: |
:,: Jesús er besti vinur barnanna. :,:
Alltaf er hann hjá mér
aldrei fer hann frá mér,
Jesús er besti vinur barnanna. |
Það er gott að vera sem gleðin býr,
þar sem gerast sögur og ævintýr.
Svon' er veröldin okkar,
sem laðar og lokkar,
svo ljúf og hýr.
:,: Lítill heimur, ljúfur, hýr :,:
lítill heimur ljúfur, hýr,
eins og ævintýr. |
|
Krummi krunkar úti
kallar á nafna sinn.
Ég fann höfuð af hrúti
hrygg og gæruskinn.
:,: Komdu nú og kroppaðu með mér
krummi nafni minn. :,: |
Göngum, göngum, göngum upp í gilið,
gljúfrabúann til að sjá.
Þar á klettasyllu svartur krummi,
sínum börnum liggur hjá.
:,: Bomm bomm, bomm bomm,
bommbarommbaromm bomm,
bomm bomm, bomm bomm, bomm bomm, bomm. :,: |
Allir krakkar, allir krakkar,
eru í skessuleik.
Má ég ekki mamma,
með í leikinn þramma?
Mig langar svo, mig langar svo
að lyfta mér á kreik. |
Allir krakkar, allir krakkar,
er'að fara heim,
heim til pabba og mömmu
líka afa' og ömmu
allir krakkar, allir krakkar
er' að fara heim. |
|
|
Sönglögin í nóvember |
|
Hani, krummi, hundur, svín,
hestur, mús, tittlingur,
Galar, krunkar, geltir, hrín,
hneggjar, tístir, syngur.
Verður ertu víst að fá,
vísu, gamli Jarpur.
Aldrei hefur fallið frá
frækilegri garpur.
Hani, krummi... |
Elska Jesú er svo dásamleg (3x)
elska svo dásamleg.
Hún er svo há, ég kemst ekki yfir hana,
svo djúp, ég kemst ekki undir hana,
svo breið, ég kemst ekki út úr henni,
elska svo dásamleg. |
Ég er barnið þitt, ég má biðja þig,
ég má lofa nafnið þitt.
Þú ert alltaf við er ég leita þín
þú, Drottinn, minn Guð (Allt sungið aftur). |
Frost er úti, fuglinn minn,
ég finn hvað þér er kalt.
Nærðu engu í nefið þitt
því nú er frosið allt.
En ef þú bíður augnablik
ég ætla að flýta mér
og biðja hana mömmu mína
um mylsnu handa þér. |
|
Silfur og gull á ég ekki
en það sem ég get gefið þér:
í nafni Jesú Krists frá Nasaret,
statt upp og komdu með.
Hann stóð upp og hoppaði, dansaði og skoppaði (3x)
og hrópaði, og hrópaði.
:,:Dýrð sé Guði, dýrð sé Guði
dýrð sé Guði sem læknað hefur mig:,: |
Sunnudagur, mánudagur,
þriðjudagur,
miðvikudagur og fimmtudagur
föstudagur laugardagur
og þá er vikan búin.
Janúar, febrúar,
mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst,
september, október,
nóvember og desember. |
Þumalfingur, þumalfingur hvar ert þú?
Hér er ég, hér er ég,
góðan daginn, daginn, daginn.
(eins sungið um alla hina fingurna) |
Einn lítill, tveir litlir, þrír litlir fingur,
fjórir litlir, fimm litlir, sex litlir fingur,
sjö litlir, átta litlir, níu litlir fingur,
tíu litlir fingur á höndum. |
|
|
Jólalögin |
|
Bráðum koma blessuð jólin
börnin fara´að hlakka til.
Allir fá þá eitthvað fallegt,
í það minnsta kerti´og spil
kerti´og spil, kerti´og spil
í það minnsta keri´og spil
Hvað það verður veit
nú enginn
vandi er um slíkt að spá
eitt er víst að alltaf verður
ákaflega gaman þá,
gaman þá, gaman þá,
ákaflega gaman þá |
Bjart er yfir
Betlehem
blikar jólastjarna.
Stjarnan mín og stjarnan þín
stjarnan allra barna.
Var hún áður vitringum
vegaljósið skæra.
Barn í jötu borið var
barnið ljúfa kæra.
Víða höfðu vitringar
vegi kannað hljóðir,
fundið sínum ferðum á
fjöldamargar þjóðir.
Barst þeim allt frá Betlehem
birtan undurskæra.
Barn í jötu borið var
barnið ljúfa kæra.
Barni gjafir báru
þeir
blítt þá englar sungu,
lausnaranum lýstu þeir
lofgjörð Drottni sungu.
Bjart er yfir Betlehem
blikar jólastjarna,
stjarnan mín og stjarnan þín,
stjarnan allra barna. |
|
Þá nýfæddur Jesús í
jötunni lá
á jólunum fyrstu var, dýrðlegt að sjá.
Þá sveimuðu englar frá himninum hans,
því hann var nú fæddur í líkingu manns.
Þeir
sungu,:"Hallelúja" með hátíðarbrag,
"nú hlotnast guðsbörnunum friður í dag"
og fagnandi hirðarnir fengu að sjá
hvar frelsarinn okkar í jötunni lá.
Ég bið þig, ó,
Drottinn, að dvelja mér hjá
að dýrðina þína ég fái að sjá.
Ó, blessa þú, Jesús, öll börnin þín hér
að búa þau fái á himnum hjá þér. |
Ég sá mömmu kyssa jólasvein
við jólatréð í stofunni í gær.
Ég læddist létt á tá
til að líta gjafir á
hún hélt ég væri steinsofandi Stínu-dúkku hjá.
Og ég sá mömmu kitla jólasvein
og jólasveinninn út um skeggið hlær.
Ja, sá hefði hlegið með hann faðir minn hefði´ann séð
mömmu kyssa jólasvein í gær. |
|
Skín í rauðar
skotthúfur skuggalangan daginn.
Jólasveinar sækja að sjást um allan bæinn.
Ljúf í geði leika sér lítil börn í desember
inni´í friði´og ró
úti´í frosti´og snjó
því að brátt koma björtu jólin.
Bráðum koma jólin.
Uppi´á lofti inni´í
skáp eru jólapakkar.
Titra öll af tilhlökkun tindilfættir krakkar.
Komi jólakötturinn, kemst hann ekki´í bæinn inn
inn í frið og ró
inn úr frosti´og snjó
því að brátt koma björtu jólin.
Bráðum koma jólin.
Stjörnur tindra
stillt og rótt, stafa geislum björtum.
Norðurljósin loga skær, leika´á himni svörtum.
Jólahátíð höldum vér hýr og glöð í desember.
Þó að feyki snjó
þá í friði´og ró
við höldum heilög jólin.
Heilög blessuð jólin.
|
Klukkurnar
dingalingaling, klingja um jól.
Börnin safnast saman
sungin jólavísa
komið er að kveldi
kertin jóla lýsa.
Klukkurnar dingalingaling, klingja um jól.
Klukkurnar
dingalingaling, klingja um jól.
Loftið fyllist friði
fagra heyrum óma
inn um opinn gluggann
allar klukkur hljóma.
Klukkurnar dingalingaling, klingja um jól. |
Í skóginum stóð kofi einn
sat við gluggann jólasveinn.
Þá kom lítið héraskinn
sem vildi komast inn.
Jólasveinn ég treysti´á þig
veiðimaður skýtur mig.
Komdu litla héraskinn
því ég er vinur þinn. |
Adam átti syni sjö,
sjö syni átti Adam.
Adam elskaði alla þá
og allir elskuðu Adam.
Hann sáði, hann sáði,
hann klappaði saman lófunum,
stappaði niður fótunum,
ruggaði sér í lendunum
og snéri sér í hring.
|
Babbi segir, babbi segir:
"Bráðum koma dýrleg jól."
Mamma segir, mamma segir:
"Magga fær þá nýjan kjól."
Hæ, hæ, ég hlakka til
hann að fá og gjafirnar:
bjart ljós og barnaspil,
borða sætar lummurnar. |
Jólaklukkur klingja
kalda vetrarnótt,
börnin sálma syngja
sætt og ofurhljótt.
Englaraddir óma
yfir freðna jörð,
jólaljósin ljóma
lýsa´upp myrkan svörð.
Litla jólabarn,
litla jólabarn
ljómi þinn stafar geisl´um ís og hjarn.
Indæl ásýnd þín, yfir heiminn skín
litla saklausa jólabarn.
|
Jólasveinar ganga´um gólf
með gildan staf í hendi,
móðir þeirra sópar gólf
og flengir þá með vendi.
:,:Upp á stól stendur mín kanna.
Níu nóttum fyrir jól þá kem ég til manna:,: |
Góða daga allir
vilja af og til
allir vilja frí í birtu´og sól.
Nú ég hvíla´í fjölskyldunnar faðmi vil
fá að eiga með þeim heilög jól.
Hátíð nú er hér,
hringjum jólin inn
okkar Jesús er, óskagesturinn.
Byggð um jarðarból, björt við höldum jól
jólabarnið Jesú skulum hylla.
Ég og þú við
gleðjast viljum glöðum með
gleðistundin aldrei er neitt tap.
Nú um jólin ekki getur annað skeð
en við komumst í hátíðarskap.
Hátíð nú er hér...
|
|
Jólasveinar einn og
átta
ofan komu´af fjöllunum,
í fyrrakvöld þeir fóru´að hátta
fund´ann Jón á Völlunum.
Andrés stóð þar utan
gátta,
það átti´að fær´ann tröllunum
þá var hringt í Hólakirkju
öllum jólabjöllunum. |
Við kveikjum einu
kerti á.
Hans koma nálgast fer
sem fyrstu jól í jötu lá
og Jesúbarnið er.
Við kveikjum tveimur
kertum á
og komu bíðum hans,
því Drottinn sjálfur soninn þá
mun senda´í líking manns.
Við kveikjum þremur
kertum á,
því konungs beðið er,
þótt Jesús sjálfur jötu´og strá
á jólum kysi sér.
Við kveikjum fjórum
kertum á.
Brátt kemur gesturinn,
og allar þjóðir þurfa´að sjá,
að það er frelsarinn.
|
|
Gekk ég yfir sjó og
land,
hitti þar einn gamlan mann.
Sagði svo og spurði svo,:
"Hvar áttu heima?"
Ég á heima´á klapplandi, klapplandi, klapplandi
ég á heima´á klapplandi, klapplandinu góða.
...stapplandi
...hopplandi
...grátlandi
...hlælandi
...Íslandi |
Nú skal segja, nú
skal segja
hvernig litlar stúlkur gera:
Vagga brúðum, vagga brúðum,
og svo snúa þær sér í hring.
....hvernig litlir
strákar gera:
sparka bolta, sparka bolta...
....hvernig ungar
stúlkur gera:
Þær sig hneigja, þær sig hneigja...
....hvernig ungir
piltar gera:
Taka ofan, taka ofan...
....hvernig gamlar
konur gera:
Prjóna sokka, prjóna sokka...
....hvernig gamlir
karlar gera:
Taka´í nefið, taka´í nefið... |
|
Göngum við í kringum
einiberjarunn,
einiberjarunn, einiberjarunn.
Göngum við í kringum einiberjarunn
snemma á mánudagsmorgni.
Svona gerum við er við þvoum okkar þvott,
þvoum okkar þvott, þvoum okkar þvott.
Svona gerum við er við þvoum okkar þvott
snemma á mánudagsmorgni.
...snemma á
þriðjudagsmorgni...vindum okkar þvott.
...snemma á
miðvikudagsmorgni...hengjum okkar þvott.
...snemma á
fimmtudagsmorgni...teygjum okkar þvott.
...snemma á
föstudagsmorgni...straujum okkar þvott.
...snemma á
laugardagsmorgni...skúrum okkar gólf.
...snemma á
sunnudagsmorgni...greiðum okkar hár.
...seint á
sunnudagskvöldi...göngum kirkjugólf. |
|
|
|
Sönglögin í janúar |
:,:Halle, halle, hallelúja
það sí, sí, sí, sí, síður inn í mér.:,:
Ég er frjáls og frí
og það er ég af því
að Jesús hann elskar mig.
Halle, halle, hallelúja
það sí, sí, sí, sí, síður inn í mér. |
Nú er frost á
Fróni,
frýs í æðum blóð.
Kveður kuldaljóð,
Kári´í jötunmóð.
Yfir laxalóni liggur klakaþil,
hlær við hríðarbyl, hamragil.
Mararbára blá
brotnar þung og há
unnarsteinum á
yggld og grett á brá.
Yfir aflatjóni æðrast skipstjórinn,
harmar hlutinn sinn, hásetinn. |
|
Hver hefur skapað blómin björt,
blómin björt, blómin björt?
Hver hefur skapað blómin björt?
Guð á himninum.
Hver hefur skapað fuglana,
fuglana fuglana?
Hver hefur skapað fuglana?
Guð á himninum.
Hver hefur skapað stjörnurnar.....
Hver hefur skapað þig og mig.....
Hver hefur skapað blómin björt,
fuglana, stjörnurnar?
Hver hefur skapað þig og mig?
Guð á himninum.
|
Allt hefur Drottinn skapað
sér til dýrðar skapað,
trén og blómin skapað,
dýr og fiska skapað.
Allt hefur Drottinn skapað
sér til dýrðar.
Öll sköpunin lofar hann.
Ég er dýrleg sköpun hans
og lifi fyrir Frelsarann.
Ég er dýrleg sköpun hans
og lifi fyrir hann. |
|
Ríðum heim til Hóla.
Pabba kné er klárinn minn,
kistill mömmu fákur þinn.
Ríðum heim til Hóla.
Ríðum út að Ási.
Ef við höfum hraðan á,
háttum þar við skulum ná.
Ríðum út að Ási.
Ríðum heim að Hofi.
Senn er himni sólin af,
sigið ljós í vesturhaf.
Ríðum heim að Hofi. |
Stóra brúin fer upp og niður, upp og niður, upp og
niður.
Stóra brúin fer upp og niður,
allan daginn.
Bílarnir aka yfir brúna, yfir brúna yfir brúna.
Bílarnir aka yfir brúna,
allan daginn.
Skipin sigla undir brúna...
Flugvélar fljúga yfir brúna...
Fiskarnir synda undir brúna...
Fuglarnir fljúga yfir brúna...
Fólkið gengur yfir brúna...
|
|
:,:Þú skalt klappa ef þú hefur létta lund:,: (klapp,
klapp)
Þú skalt klappa allan daginn,
svo það heyrist út um bæinn.
Þú skalt klappa ef þú hefur létta lund (klapp, klapp)
-Þú skalt stappa ef þú hefur létta lund (stapp,
stapp)
-Þú skalt hlæja......(ha,ha)
-Þú skalt hnerra.....(ahtsjú)
-Þú skalt hrópa......(húrra) |
Hjólin á strætó snúast hring, hring, hring,
hring (6x).
Hjólin á strætó snúast hring, hring, hring,
út um allan bæinn.
Hurðirnar á strætó opnast út og inn, út og inn, út
og inn.
Hurðirnar á strætó opnast út og inn
út um allan bæinn.
-Peningarnir í strætó segja klink, klink, klink...
-Fólkið í strætó segir bla, bla, bla...
-Krakkarnir í strætó hlæja hí, hí, hí....
-Bílstjórinn í strætó segir uss, uss, uss...
-flautan í strætó segir bíb, bíb, bíb...
-Bremsurnar í strætó segja íííííí.... |
Ó, Jesús, bróðir
besti
og barnavinur mesti,
æ, breið þú blessun þína
á barnæskuna mína. |
|
|
|
Sönglögin í febrúar |
|
:,:Drippedí dripp,
droppedí dropp
drippedí, drippedí, droppedí dropp:,:
Rigning
hér og rigning þar
og rigningin er alls staðar
en sama'er mér og sama'er þér
við sullum og bullum hér. |
Dripp
dropp dripp dropp dripp dropp dripp dropp.
Hvað er það sem rignir svo regnhlífarnar á?
Hvað rennur svo bólstrunum svörtu frá?
Það er vatnið, vatnið, ekkert nema vatnið.
Dripp
dropp...
Hvað er í þeim skýjum sem skreyta loftin blá
en skipin og bátarnir sigla á?
Það er vatnið...
Dripp
dropp.....
Hvað er það sem alls staðar liggur kringum lönd
og leikandi gjálfrar við sjávarströnd?
Það er vatnið...
Dripp
dropp...
Hvað er það, sem börnin sig baða stundum í
en breytist í ís, þegar frost nær því?
Það er vatnið...
|
|
Á sandi
byggði heimskur maður hús (3x)
og þá kom steypiregn.
Þá kom steypiregn og vatnið óx og óx (3x)
og húsið á sandinum, það féll.
Á bjargi
byggði hygginn maður hús (3x)
og þá kom steypiregn.
Þá kom steypiregn og vatnið óx og óx (3x)
en húsið á bjarginu stóð fast. |
Guð á himnum sagði við Nóa:
"Þú munt bjargast flóði frá.
Örkina stóru skaltu smíða,
orði mínu byggðu á."
Hann fór að smíða (smella í góm):
Hann fór að saga (sa,sa,sa,sa,sa,sa).
Hann fór að smíða (smella í góm).
Hann fór að saga og saga og vann alla daga
duglegur Nói gamli var.
|
|
Góður er
Guð, góður er Guð
góður er Guð hann er góður við mig.
Dios
bueno es, Dios bueno es
que bueno es, bueno es el Senjor. |
Jesús er bjargið sem byggja
má á,
bjargið sem byggja má á.
Borgin sem óvinir sigrað ei fá,
óvinir sigrað ei fá.
Hann er frelsarinn (3x)
frelsari minn og þinn. |
|
"Ding
dong", sagði lítill grænn froskur einn dag.
"Ding dong", sagði lítill grænn froskur.
"Ding dong", sagði lítill grænn froskur einn dag
og svo líka "ding dong spojojojojong."(velta höfði á ding dong)
"King
kong", sagði stór svartur api einn dag.
"King kong", sagði stór svartur api.
"King kong", sagði stór svartur api einn dag
og svo líka"King kong aaaaaaa." (slá á brjóstkassa)
"Um a",
sagði lítil bleik eðla einn dag.
"Um a", sagði lítil bleik eðla.
"Um a", sagði lítil bleik eðla einn dag
og svo líka "um a aaaa"(tunguhljóð á a-inu) |
Við setjum svissinn á og við
kúplum gírnum frá
það er startað og druslan fer í gang - brumm brumm.
Það er enginn vandi'að aka bifreið
ef maður bara kemur henni'í gang - brumm brumm. |
|
Nú er úti
norðanvindur
nú er hvítur Súlutindur.
Ef ég ætti úti kindur
mundi'ég láta'þær allar inn
elsku besti vinur minn.
:,:Úmba
rassa úmba rassa
úmba rassa sa:,:
Upp er
runninn öskudagur
ákaflega skýr og fagur.
Einn með poka ekki ragur
úti vappar heims um ból.
Góðann daginn, gleðileg jól.
Úmba
rassa... |
Á
bolludaginn fer ég með bolluvönd á kreik
mér alltaf þykir gaman að leika þennan leik.
Ég bolla og bolla á bossann á þér fast ég slæ
bolla og bolla og bollu'í laun ég fæ.
Já, bragðgóðar eru bollurnar, bollurnar, bollurnar
já bragðgóðar eru bollurnar, húllum hæ.
Á
sprengidag er bumban að springa hreint á mér
því magnið er ei smátt sem í magann fer
af saltkjöti'og baunum ég saðningu í magann fæ
af saltkjöti'og baunum ég saddur verð og hlæ.
Já, bragðgóðar eru baunirnar, baunirnar, baunirnar
já, bragðgóðar eru baunirnar, húllum hæ.
Á
öskudaginn held ég með öskupoka'af stað
að elta menn og konur sem ekki vita'um það.
Hengi svo poka á hinn og þennan sem ég næ
lauma á poka, læðist burt og hlæ.
Svo dingla þeir þarna pokarnir, pokarnir, pokarnir
svo dingla þeir þarna pokarnir húllum hæ. |
|
|
Sönglögin í mars |
Höldum áfram að syngja Drip, drop, drip,drop
(sjá: sönglögin í febrúar) |
|
Sögu vil ég segja stutta
sem að ég hef nýskeð frétt.
Reyndar þekkið þið hann Gutta,
það er alveg rétt.
Óþekkur er ætíð anginn sá,
út um bæinn stekkur hann og hoppar til og frá.
Mömmu sinni unir aldrei hjá
eða gegnir pabba sínum. Nei, nei, það er frá.
Allan daginn út um bæinn
eilíf heyrast köll í þeim:
"Gutti, Gutti, Gutti, Gutti,
Gutti komdu heim."
Andlitið er á þeim stutta
oft sem rennblautt moldarflag,
mædd er orðin mamma´hans Gutta,
mælir oft á dag:
"Hvað varst þú að gera, Gutti minn?
Geturðu´ekki skammast þín að koma svona inn?
Réttast væri´að flengja ræfilinn.
Reifstu svona buxurnar og nýja jakkann þinn?
Þú skalt ekki þræta, Gutti,
það er ekki nokkur vörn.
Almáttugur en sú mæða´
að eiga svona börn."
Gutti aldrei gegnir þessu
grettir sig og bara hlær.
Orðinn nær að einni klessu
undir bíl í gær.
Onaf háum vegg í dag hann datt
Drottinn minn, og stutta nefið það varð alveg flatt.
Eins og pönnukaka, er það satt?
Ójá, því er ver og miður þetta var svo bratt.
Nú er Gutta nefið snúið
nú má hafa það á tröll.
Nú er kvæðið næstum búið.
Nú er sagan öll.
|
Ba bú ba bú,
brunabíllinn flautar.
Hvert er hann að fara?
Vatn á eld að sprauta
dss dss dss dss,
gerir alla blauta.
Mjá mjá mjá mjá,
mjálmar gráa kisa.
Hvert er hún að fara?
Út í skóg að ganga
uss uss uss uss,
skógarþröst að fanga.
Bí bí bí bí,
skógarþröstur syngur.
Hvert er hann að fara?
Burt frá kisu flýgur
uí uí uí uí,
loftin blá hann smýgur. |
:,:Gleðifréttir, gleðifréttir,
gleði, gleði, gleðifréttir:,:
:,:Ég gekk til grafar,
hún var auð og tóm
ég gat ei lengur fundið Hann þar.:,:
Jesús lifir, Jesús er upprisinn
hósanna, dýrð sé Guði, syngjum halelúja.
Jesús lifir, Jesús er upprisinn
hósanna, syngjum halelúja,
halelúja, halelúja.
|
:,:Upprisinn er Hann, húrra, húrra!
Hann lifir, Hann lifir, Hann lifir enn:,:
Tóm er gröfin og opin því er ekki meistarinn hér?
Klæðin Hans liggja þar inni enn
en engin veit hvar Hann er.
En engin veit hvar Hann er!
Upprisinn er Hann... |
Amen, lofum Guð
(2x)
Dýrð sé Guði halelúja, lofum Guð.
Ég ætla´að hoppa´upp, snúa´í hring,
snerta jörð og lofa Guð.
|
Ég elska Jesú,
Hann elskar mig,
ég vil honum fylgja alla mína tíð
og ég elska Hann "Elska Hann" (3x) (það sem er innan " er hrópað)
Og Jesús elskar mig(2x) |
Guð hefur eyru Hann heyrir.
Guð hefur augu Hann sér.
Hjartað mitt litla það veit að
Drottinn einn Hann er.
Er ég klappa í gleði minni,
er ég syngja vill sönginn um Hann
lalalalala bæði Hann sér og heyrir
lofgjörð sérhvers barns.
Lalalalalal......
Guð hefur eyru.....
(endað á "Drottinn einn Hann er") |
Ég heyri svo vel ég heyri grasið gróa.
Ég heyri svo vel ég heyri snjóinn snjóa.
Ég heyri svo vel ég heyri orminn mjóa,
heyri hárið vaxa,
heyri neglurnar lengjast,
heyri hjartað slá. |
|
|
|