Kirkjustundir

 

 

   
Heim
Upp
Gullmolarnir
Demantarnir
Yngstubarnastarf
Kirkjustundir
Tónleikur/hreyfing
Söngtextar
Stjörnurnar
Elstubarnastarf
Útideild
Tjaldferð

 

Einu sinni í viku, á mánudögum, förum við inn í sal Hvítasunnukirkjunnar og eigum þar notalega stund saman í þrjátíu mínútur eða svo. Þessar stundir eru eins og lítill sunnudagaskóli þar sem við syngjum lög um Jesú, tölum um Jesú, heyrum frásagnir af Jesú og biðjum til hans. Oft fáum við vini í heimsókn en það eru brúður, bangsar eða annað sem við þekkjum vel.


                                                             

 Í vetur (2010-2011) tökum við fyrir ákveðin þemu.

Fyrir áramót skoðum við það sem við getum: "Ég get elskað
"
, "ég get hlýtt", "ég get fyrirgefið"........

Eftir áramótin skoðum við "faðir vorið" lið fyrir lið.

Á þriðjudögum rifjum við síðan upp það sem við lærðum í kirkjustundinni og litum myndir sem tengjast efninu.
 

 


Hlíðaból - Leikskóli Hvítasunnukirkjunnar á Akureyri
Skarðshlíð 20 603 Akureyri - sími: 462-7411 - tölvupóstfang: hlidabol hja hlidabol.is