|
|
|
|
|
|
![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]()
|
SMT-skólafærni
er útfærsla á bandarísku aðferðinni Positive Behavior Support/PBS.
SMT er hliðstæð aðferð og PMT-foreldrafærni (Parent Management Training)
þar sem lögð er áhersla á að koma í veg fyrir og draga úr hegðunarvanda
með því að kenna og þjálfa félagsfærni, umbuna fyrir æskilega hegðun og
samræma vinnubrögð starfsfólks gagnvart nemendum sem sýna óæskilega
hegðun.
Ef þú villt kynna þér PMT/SMT eitthvað nánar bendum við á heimasíðu PMT í Hafnarfirði www.hafnarfjordur.is/hafnarfjordur/pmt_forsida
|
|||||||||||||||||||||||||||||
|
júní 2011 Þá er búið að kenna allar reglurnar en það
þýðir hins vegar ekki að nú sé þetta komið, ónei. Þegar við vorum að
kenna reglurnar sáum við að sumar þeirra voru mjög líkar og aðrar
óþarfar svo núna höfum við farið yfir þær á nýjan leik og skorið niður
(alls staðar niðurskurður). Næsta haust byrjum við svo aftur að kenna (rifja
upp) reglurnar, einveruna, athyglimerkið o.fl.
|
||||||||||||||||||||||||||||||
|
mars 2011 Innleiðingunni lýkur senn því eingöngu þrjár kennslur eru eftir en þá eru (eins og sjá má í töflunni hér að neðan) reglurnar í samveru, söngstund og vettvangsferðum kenndar. Við förum senn í enn eina skráninguna en svona skráningar eru gerðar mjög reglulega svo við getum betur fylgst með og gripið inn í ef þarf. |
||||||||||||||||||||||||||||||
|
29. október 2010 Það gengur bara alveg ágætlega að innleiða reglurnar, erum ekki frá því að börnin séu duglegri en við sjálfar (erfitt að kenna gömlum hundi....) en þetta kemur allt saman. Reglulega förum við svo í skráningu til að fylgjast með hvort það sé meira af árekstrum á einhverjum ákveðnum stað eða ákveðnum tíma hjá börnunum. Ef svo er, þarf að taka á því og hugsanlega gera einhverjar breytingar. Svona skráning hefst einmitt 1. nóvember. |
||||||||||||||||||||||||||||||
|
6.október 2010 Við erum byrjaðar að kenna reglurnar eftir gott sumarfrí og var fyrsta kennslustund upprifjun á yfirreglum og einveru. Núna erum við að læra reglurnar í matartímunum en skipulag vetrarins er svona:
|
||||||||||||||||||||||||||||||
|
23. mars 2010 Þurfum að gera smá breytingu á fyrirhuguðu skipulagi. Mánudaginn 12. apríl stóð til að kenna reglurnar í útiverunni en í staðinn munum við kenna og æfa einveruna. Einvera er "verkfæri" sem er notað til að stöðva óæskilega hegðun en þá hefur barn val um að bæta hegðun sína eða fara afsíðis í stutta stund. Þetta þarf að kenna börnunum og æfa með þeim. Við munum nota litlar mottur sem barnið mun sitja á í lágmark þrjár mínútur (ath. þetta verður útfært öðruvísi hjá allra yngstu börnunum). Úti er einveran þannig að barnið þarf að leiða starfsmann án þess að eiga samskipti við hann. Reglurnar í útivistinni verða hins vegar kenndar 3. maí, reglur í matartímum kenndar 25.maí og reglur á wc geymdar til haustsins. Hrafnhildur hefur tekið sæti Sifjar í teyminu. |
||||||||||||||||||||||||||||||
|
21.janúar 2010 Síðasti fundur fyrir innleiðingu og alltaf finnum við eitthvað sem þarf að bæta og breyta. Við byrjum 1. febrúar að kenna yfirreglurnar en þær eru þrjár: 1."fara eftir fyrirmælum" , 2. "Gæta handa sinna og fóta" og 3. "nota inniröddina". Byrjað er á mánudegi og tvær vikur teknar í að læra og æfa reglurnar og á meðan söfnum við litlum brosmerkjum, sem við geymum hér í leikskólanum. Í lok seinni vikunnar er umbun fyrir alla. Þriðja vikan er pása áður en við byrjum að kenna fleiri reglur. Og svona er skipulagið fram á sumar: Dagsetning
Hvaða reglur
Umbun |
||||||||||||||||||||||||||||||
|
7. janúar 2010 Í dag fórum við yfir það sem við áttum að gera fyrir þennan fund og fengum staðfestingu á því sem gera þarf áður en innleiðingin hefst. Við erum byrjaðar að gera svokallaða grunnlínuskráningu en þá skráum við hjá okkur alla neikvæða hegðun, sem fram koma hjá börnunum, í átta daga til að sjá hvort það sé einhver hegðun meira áberandi en önnur. Þetta er síðan gert á sama tíma á hverju ári. Núna eigum við að æfa okkur í að kenna reglur því stóri dagurinn verður mánudaginn 1.febrúar. Þetta verður örugglega strembið fyrst því við þurfum ekki bara að kenna börnunum heldur líka að taka okkur sjálf í gegn. Vallý og Hrafnhildur munu fara á smt-námskeið núna á vorönninni. |
||||||||||||||||||||||||||||||
|
19. nóvember 2009 Jæja, jæja, það styttist í stóra daginn en við stefnum að því að byrja að innleiða smt-skólafærni mánaðarmótin janúar/febrúar. Núna þarf að fínpússa alla hluti, klára möppuna svo starfsfólkið geti lesið sér til um málið, panta brosmiðana, skipuleggja hvenær og hvar skal kenna reglurnar og svo framvegis og svo framvegis. |
||||||||||||||||||||||||||||||
|
8. október 2009 Það hefur ekki gengið vel að koma teyminu saman að nýju eftir sumarfrí en loksins tókst það. Við þurftum að rifja svolítið upp (ryð gert vart við sig), yfirfara það sem lokið er og halda síðan áfram þar sem frá var horfið. Enn er gert ráð fyrir því að byrja að innleiða kerfið í janúar, annað verður tíminn að leiða í ljós. |
||||||||||||||||||||||||||||||
|
28. maí 2009 Þá er vinnan við mörkin farin á fullt en mörk eru notuð til að stöðva óæskilega hegðun. Við þurfum að útskýra eitt og annað varðandi þau til að setja í möppuna okkar, einnig þurfum við að flokka niður hvað væri minniháttar óæskileg hegðun og hvað væri meiriháttar. Enn er nóg vinna fram undan en allt hefst þetta nú. Eins og staðan er í dag gerum við ráð fyrir því að hefja "leikinn" um næstu áramót. |
||||||||||||||||||||||||||||||
|
Maí 2009 Sif og Birkir fóru á Pmt-námskeið eftir áramótin og lauk því núna í maí. Núna hafa sem sagt fjórir starfsmenn sótt þessa fræðslu og er okkar verkefni meðal annars það að fræða hina. Það er hins vegar töluvert átak að venja sig á breyttar aðferðir og þarf að byrja á sjálfum sér - það þarf hugarfarsbreytingu; Slökkva á tuðinu og neikvæðu styrkingunni en draga fram jákvæðnina, hætta að segja hvað barnið á ekki að gera en segja því þess í stað hvað það á að gera. |
||||||||||||||||||||||||||||||
|
20. apríl 2009 Núna erum við byrjaðar að móta möppuna sem
inniheldur ALLAR upplýsingarnar um smt í Hlíðabóli. Þessi mappa er
hugsuð fyrir starfsfólkið svo það viti hvað, hvernig og til hvers þetta
er. Við í smt-teyminu eru búnar að skipta með okkur verkum og er
skiptingin svona: |
||||||||||||||||||||||||||||||
|
12. mars 2009 Við erum enn í því að fínisera, "slípa", "pússa" og svoleiðis. Benný hefur verið að leiðrétta villur og fleira, Salmína og Vallý fóru yfir kennsluleiðbeiningarnar svo að örugglega ekkert verði eftir og Sif skoðaði og valdi myndir til að fylgja reglunum. |
||||||||||||||||||||||||||||||
|
5. mars 2009 Við yfirfórum það sem búið er að gera, löguðum lað sem þurfti að laga og betrumbættum annað, leiðréttum stafsettningavillur og fleira þess háttar. |
||||||||||||||||||||||||||||||
|
12.febrúar 2009 Okkur tókst það!! við erum loksins búnar með kennsluleiðbeiningarnar. Jahúú! Þá er bara að snúa sér að næsta lið, hélt einhver að nú væri allt búið? Langt í frá, við erum nýbyrjaðar. |
||||||||||||||||||||||||||||||
|
8. og 29. janúar 2009 Tvo síðastliðna fundi höfum við verið að vinna áfram með kennsluleiðbeiningarnar. þetta er tölvuvinna og auðvitað hafa tölvurnar verið að stríða okkur, það er bara þannig. Eftir fundinn í dag sjáum við hins vegar fyrir endann á þessu kennsluleiðbeiningar-ferli en hvað ætli komi næst? Þetta er æsispennandi framhaldssaga. |
||||||||||||||||||||||||||||||
|
11. desember 2008 Núna erum við byrjaðar að hanna kennsluleiðbeiningarnar. Við skiptum reglunum og okkur sjálfum niður í tvo hópa og vinnum þetta þannig. Við héldum að skilgreiningarvinnan væri mikil (sjá 13. nóvember) en við vissum ekki hvað væri fram undan. Núna erum við komnar í smá jólafrí en byrjum væntanlega aftur 8.janúar 2009. |
||||||||||||||||||||||||||||||
|
27. nóvember 2008 Við erum bara mjög ánægðar með okkur sjálfar, okkur tókst að klára skilgreininguna á reglunum svo nú getum við snúið okkur að næsta máli sem er að hanna kennsluleiðbeiningar. |
||||||||||||||||||||||||||||||
|
13. nóvember 2008 í dag byrjuðum við á þeirri vinnu að skilgreina hverja einustu reglu fyrir sig svo allir þeir sem koma að leiskólanum viti fyrir hvað þær standa og hvað ætlast er til með hverri reglu. Þetta er heilmikil vinna og mun taka okkur nokkra fundi. |
||||||||||||||||||||||||||||||
|
30. október 2008 Við héldum áfram að semja reglurnar.
Núna tókum við fyrir matartímana, yngstubarnastarfið, elstubarnastarfið,
samverurnar, söngstundirnar, hvíldina, kirkjustundirnar, hópastarfið
o.fl. |
||||||||||||||||||||||||||||||
|
16.október 2008 Við sömdum slagorð leikskólans: "Börnin á Hlíðabóli eru frábærar hetjur" skilgreining á frábær: einhver sem er til
fyrirmyndar Einnig tókum við til við að semja reglur fyrir hin ýmsu herbergi en það er verkefni sem tekur töluverðan tíma og þarf að vanda vel til. |
Hlíðaból - Leikskóli Hvítasunnukirkjunnar á
Akureyri
Skarðshlíð 20 603 Akureyri - sími: 462-7411 -
tölvupóstfang: hlidabol hja hlidabol.is