Elstubarnastarf

Heim
Upp
Gullmolarnir
Demantarnir
Yngstubarnastarf
Kirkjustundir
Tónleikur/hreyfing
Söngtextar
Stjörnurnar
Elstubarnastarf
Útideild
Tjaldferð
 

 

 

Veturinn 2010-2011

Elstubarnastarfið er, eins og nafnið bendir til, ætlað elsta árganginum í leikskólanum og er það hugsað sem brú á milli leik- og grunnskóla ásamt því að vera smá tilbreyting eftir "margra" ára veru í leikskólanum.  Starfið okkar fer fram tvisvar sinnum í viku, á mánudögum og þriðjudögum, klukkutíma í senn.  Börnin  eru 8 í ár, og 1 starsfmaður  með þeim,Halla...  

Börnin eru eftirfarandi, Alexander Máni, Bryngeir Óli, Emelía Karen, Emelía Valey, Haraldur, Melrós Ynja, Sara Yassmine og Vignir Otri.

 

30.8.

Við fórum í berjaferð upp í Kollugerðismóa.Við tíndum vel af berjum á stuttri stund, gott veður og skemmtilegt.Daginn efti bjuggum við til berjasultu, sem bragðaðist miög vel. Allir fengu eina krukku með sér heim.

 

13.9.

 Elstubarnastarf hófst í dag. Við lærðum nýjar reglur í SMT. Umbun rædd. Við mældum vatn og rafmagn, við eigum að sjá um það. Síðan mældum við hvað allir voru stórir og skrifuðum það niður, svo mælum við aftur í vor og sjáum þá hvað allir hafa stækkað í vetur.

14.9.

Við máluðum gámana okkar og dósir undir liti.Þeir sem ekki voru að mála gerðu verkefni.

20.9.

Gerðum spora verkefni, æfðum að fara eftir fyrirmælum. Lituðum svo myndina.

21.9.

Lærðum A og Á. Fórum svo yfir liti og form.

 

27.9.

Tíndum rusl í Kvenfélagsreitnum, og lærðum um áttirnar uppi á klettunum. Lékum okkur síðan og rifjuðum upp hvernig var í Útiskólanum í sumar.

28.9.

Farið var yfir hvað Grænfána verkefnið stendur fyrir.Hvað við getum gert til að halda bænum okkar og jörðinni, fallegum og heilbrigðum.Hlla var á námskeiði svo að Vallý sá um það.

4.10.

Lásum af rafmagni og hita. Lærðum B. Fórum yfir nýjar reglur í matmálstímum og ræddum umbun.Svo máluðum við andlit á steina.

5.10.

Öryggisverðirnir fóru yfir allt í leikskólanum, vorum í nokkuð góðum málum þar. Gerðum síðan nokkur talnaverkefni. Allir duglegir Hlustuðum á meðan á fyrrihlutan af Karnival dýranna.

11.10.

Fórum í stafaspil, allir mjög spenntir lituðum síðan mynd á meðan við hlustuðum á seinni hluta Karnivalsins.Að lokum æfðum við rýmingu úr húsinu, allir voru mjög snöggir út.

12.10.

Slökkviliðið kom í heimsókn. Það var mjög gaman. Þau kenndu okkur hvað við eigum að gera ef það kviknar í, ef einhver veikist og margt fleira. Síðan vorum við fljót eins og slökkviliðsmenn að klæða okkur í útifötin og fengum svo að sjá allt sem,  er í slökkvibílnum og fórum líka inn í hann.

 

18.10.

Við lærðum D í dag . Síðan kom Hjálpfús í heimsón og sagði okkur til hvers Rauði krossinn er.

19.10.

Gerðum nokkur spora verkefni, Það voru tölustafir, sem  við æfðum að skrifa í dag.

25.10.

Lærðum nýjar reglur, til notkunar á klósettinu í dag. Við byrjuðum líka á jólagjöfum til foreldra. Bannað að spyrja.

26.10.

Héldum áfram mað leyndarmálin og gerðum talnaverkefni. Allir áhugasamir um tölustafi.

 

1.11.

Mældum rafmagn og hita í dag og fórum yfir öryggisatriðin Allt nokkurnvegin í lagi þar. Gerðum síðan verkefni frá slökkniliðinu. Þið foreldrarnir eigið svo að hjálpa við öftustu síðuna heima.

2.11.

Jólagjafavinna í dag og talnaverkefni.

8.11.

Lærðum Ð E og É í dag. allir mjög áhugasamir. Kláruðum slökkviliðsverkefnið, síðan kom Hjálpfús í heimsókn.

Heimsóttum Glerárskóla í frímínútum. Hittum alla gömlu vinina og lékum okkur

saman. Ótrúlega skemmtilegt.

 

15.11.

Pökkuðum leyndarmálum og bjuggum til jólakort.

16.11.

Krakkar úr Glerárskóla komu og lásu fyrir okkur, vegna ,,Dags 'Islenskrar tungu". Það var mjög skemmtilegt, og meiningin að halda því áfram á næsta ári..

22.11.

Gerðum smá jólaföndur í dag. Síðan var æfing fyrir litlu jólin, sem gekk vel.

23.11.

Við kláruðum öll leyndarmál í dag, og höfðum líka smá æfingu.

29.11.

Lærðum F G og H í dag. Allir duglegir að skrifa stafina. Gerðum síðan sporaverkefni. Æfing í lokin.

30.11.

Við kveiktum á kertum í dag, spiluðum jólalög og lituðum jólamynd, spjölluðum líka um jólin. æfing í lokin.

6.12.

Elstubarnastarf féll niður í dag.

7.12.

Lásum af rafmagni og hita og fórum yfir öryggis atriðin. Gerðum erfiða stafaþraut, þar sem börnin áttu að finna stafina í nafninu sínu og lita þá.Æfing í lokin.

Gleðileg jól.

2011.

5.1.

Við fórum í heimsókn í Glerárskóla og skoðoðum skólann. Allir voru mjög spenntir og glaðir. Við fengum að sjá allt mögulegt, bókasafnið, heimilisfræðina, tölvuverið, frístund, eldhús og matsal. Við hittum líka marga sem við þekkjum.

10.1.

Við lærðum I,'I J og K. Lásum af rafmagni og vatni, og æfðum okkur í að skrifa nöfnin okkar. Við byrjuðum líka á mynd, sem slökkviliðsmennirnir báðu okkur að gera eftir heimsókn þeirra í haust.

11.1.

Gerðum verkafni í dag, þar sem við vorum að æfa klippifærni okkae. Síðan límdum við það sem við höfðum klippt á blað. Kláruðum líka slökkviliðs listaverkið.

12.1.

'I ævintýrahóp í dag máluðum við bangsarúm.Vonandi mega krakkarnir koma með litla bangsa til að hafa í rúmunum.

17.1.

Við saumuðum rúmföt í rúmin. Allir skemmtu sér hið besta. Þau sem ekki voru að sauma gerðu verkefni með form á meðan.

18.1.

Við vorum með hlustunarverkefni, Það var mjög erfitt.það þurfti að einbeita sér vel, erfitt fyrir suma að þurfa að hlusta vel og fara eftir fyrirmælum. Hjálpfús kom í heimsókn og við bjuggum til orðið SK'OLI . Við fundum stafina í stórri stafahrúgu.

24.1.

Við klipptum ag máluðum víkingahjálma fyrir þorrablótið okkar. Teiknuðum síðan mynd af fjölskyldunni.

25.1.

L,M ogN voru á dagskránni í dag. Spiluðum síðan stafaspil, mjög skemmtilegt.

31.1

Lærðum nýjar reglur, lækum okkur með rúmin Lærðumlíka O og 'O. Lokahönd lögð á slökkviliðsmynd.

1.2.

Mældum rafmagn og vatn. Skoðuðum hnattlíkan.Hvar hin og þessi lönd eru, mikil umræða í gangi. Við skoðuðum líka fræðslubækur um jörðina og lífið á henni.

7.2.

Bjuggum til gogga með glöðum myndum. Fórum síðan niður á ,,GLEÐITORG" og fengum að gogga vegfarendur. Allir tóku mjög vel í það og urðu glaðir þegar þei fengu svona líka glaðar teikningar  hjá börnunum.

8.2.

Við fórum með nesti og nýja skó, í Glerárskóla í dag. Krakkarnir voru að læra Æ. Síðan fengum við mjólk með brauðinu okkar og banananum. Kennarinn las sögu á meðn við borðuðum. Efti tímann fórum við út í frímínútur með öllum gömlu vinunum okkar. Mjög gaman.

14.2.

Við bjuggum til bolluvendi í dag og máluðum poka handa litlu krökkunum, til að slá köttinn úr tunnunni á meðan við verðum í bænum að syngja á öskudaginn.

15.2.

Kláruðum vendina okkur, sem urðu mjög flottir og vel bólstraðir. Síðan gerðum við líka sporaverkefni.

16.6. 'I ævintýrahóp fórum við á slökkvistöðina með myndina. Hún vakti mikla lukku þar.

21.2.

Lærðum P R S í dag. Það gekk vel. Síðan lærðum við líka nýjar reglur í hreyfingu. Gerðum svo verkefnir , þar sem við áttum að finna það sem vantaði á marga hunda, það var erfitt.

22.2.

Féll niður í dag.

28.2.

Við æfðum okkur í tölustöfum, að skrifa þá. Það getur verið ótrúlega erfitt.

Hjálpfús kom svo í heimsókn.

1.3.

Lásum af rafmagni og hita í dag. Síðan sáðum við fræum og ræddum um hvað þau þyrftu til að lifa og dafna. Þau þurfa birtu ,vatn og loft, eins og allt sem lifir uppi á jörðinni.Síðan máluðum við skyrdósir til að nota undur blómin þegar þau hafa spírað.

7.3.

Við settum blómin okkar í pottana, því að þau voru strax farin á vaxa.Við vökvuðum þau og töluðum við þau og um þau líka. Síðan gerðum við hlustunar verkefni, og æfðum okkut í að ríma.

8.3.

Við bjuggum til sparibbauka úr endu nýtanlegu efni, vökvuðum fræ og blóm. Síðan gerðum við form verkefni.

9.3.

Við fórum á málverkasýningu í ævintýrahóp. Máluðum myndir sem hanga þar uppi.

14.3.

Við bjuggum til ævintýri í dag, það er mjög spennandi. Síðan lærðum við T U 'U.

15.3.

Við flokkuðum allt ruslið á heimilinu í dag og gengum frá því, vorum mjög dugleg við það. Síðan bjuggum við til nöfnin okkar úr stöfum sem við þurftum að finna í stórri hrúgu. Síðan kom hjálpfús í heimsókn.

16.3.

Við fórum með 1.bekk í Glerárskóla í leikfimi, Það var sko fjör, allir eldrauðir og sveittir eftir það.

21.3.

Lærðum V og X í dag. Skrýtinn stafur X, enginn á svona staf. Við gerðum líka verkefn þar sem við þurftum að klippa lita og telja.

22.3.

Við teiknuðum myndir við söguna okkar. Margar fínar myndir litu dagsins ljós.Síðan leiruðum við stafi.

28.3.

Æfðum okkur í tölustöfum í dag. Lásum tölur, skrifuðum tölur og gerðum verkefni þar sem við þurftum að telja, teikna og skrifa tölustafi.

29.3.

Við flokkuðum til endurvinnslu. Fórum yfir stafrófið og æfðum að telja.

4.4.

Við lásum af rafmagninu og vatninu og sáum hvað við eyddum miklu af því, í mánuðinum sem var að ljúka. Lærðum Y-Ý-Þ. Síðan var æfing fyrir Páskahátíðina.

5.4.

Æfing, æfing æfing.

11.1.

Lærðum Æ og Ö. Þá erum við búin að fara yfir allt stafrófið í vetur, og vonandi situr eitthvað eftir af því í haust þegar skólinn byrjar. Við föndruðum líka, bjuggum til puttapöddur. Síðan var æfing og hún gekk mjög vel, allir duglegir að muna sitt hlutverk.

12.4.

Æfing fyrst. Síðan  gerðum við tvö verkefni fyrir athyglis gáfuna.Svo unnum við tauþrikk. Næsta elstubarnastarf verður eftir páska.Gleðilega hátíð.

2.5.

Heimsókn í frímínútur í Glrárskóla með fyrsta bekk. Allir léku sér saman í mesta bróðerni.

3.5.

Lásum af rafmagn og hita. Mældum hvað við höfum stækkað í vetur og teiknuðum sálfsmyndir. Einnig kláruðum við ýmislegt , srm við áttum óklárað.

9.5.

Saumuðum handalausa kalla. Límdum stafi og tölustafi á spýtukubba.

10.5.

Kláruðum að sauma, Lituðum síðan og klipptum út mynd sem við völdum sjálf, við áttum að vanda okkur. Þetta var síðasti tíminn okkar, því að við flytjum í kjallarann á mánudaginn. Allir hlakka mikið til.

TAKK FYRIR VETURINN.

Allir að sauma af innlifun.

 

Við með víkingahjálmana að sönnum víkinga sið.

 

Bangsarúmin glæsilegu.

 

Slökkviliðs listaverkið.

 

Listaverkið afhent. Allir fengu að skoða bílana. Það var EKKI leiðinlegt.

 

Við í heimsskoðun.

 

Allir goggaðir á Glerártorgi.

 

Glerárskóla heimsókn.

 

Heimsókn á Listasafnið, þar fengu krakkarnir að mála listaverk, undir handleiðslu safn kennara.                                                                                                             

Bolluvandaframleiðsla.

 

'Iþróttatími í Glerárskóla.

 

Allir að búa til stafina sína.

 

Við fórum að renna okkur hjá Skarðshlíðar blokkunum. Þvílíkt fjör og gleði.

Heima hjá Höllu. Allir að leika sér úti og inni og borða saman.

 

Heimsíkn í Glerárskóla og í þrautabraut og grill, hjá sökkviliðinu. Öll elstu börn á Akureyri tóku þátt.

 

 

   

Hlíðaból - Leikskóli Hvítasunnukirkjunnar á Akureyri
Skarðshlíð 20 603 Akureyri - sími: 462-7411 - tölvupóstfang: hlidabol hja hlidabol.is